Ólíðandi Vinnubrögð.

Götusmiðjan er og hefur verið eina úrræði sem Barnaverndarnefndhefur haft fyrir þau börn okkar og ungmenni sem leiðst hafa út í neyzlu vímuefna.Ég þekki ekki meðferðina þar af eigin raun en ég þekki heldur ekki nein önnur meðferðarúrræði sem eru óumdeild!
Ég er en síður þess umkominn að deila á eða mæla með starfi Mumma í Götusmiðjunni. Ég hef ekki heyrt eða lesið neitt neikvætt um manninn og hann hlýtur jú að vera mannlegur. En það sem skiptir máli hérna eru börnin! Staðnum er bara lokað og börnin send heim! Og það er Barna- VERNDAR - nefnd sem að þessu stendur. Þarna heggur sá sem hlífa skyldi. Ég hugsa til þess með hryllingi ef þessar aðgerðir leiða til falls ( og /eða dauða ) eins eða fleiri af þessum átta sem þarna var varpað á dyr.
Auðvitað vill enginn í orði kveðnu að börnum og ungmennum sé hótað, En við gerum það samt öll ! "Þú færð ekki að horfa á sjónvarpið nema þú klárir þessa gulrót ". Þegar börnin okkar eru komin á þannig stað í sínu lífi að okkur finnst þeim betur borgið á götusmiðjunni en heima hjá sér eru venjulegar uppeldisaðferðir stundum hættar að virka. Aðferðirnar hanns Mumma hafa aftur á móti virkað hjá fjölmörgum af þessum einstaklingum. En svo kemur maðurinn sem heldur að hann sé Löggan og lokar..... bara aþþíbara bara...... aþþí að ég máða....
  Það má ekki vera hægt að henda einstaklingum sem eru í meðferð út á þennan hátt. Og þegja svo um ástæður þess eins og einhver gestapo lögregla sem hafin er yfir lög, rétt og gagnrýni. Við bara megum ekki láta þetta viðgangast, Svona vinnubrögð eru ólíðandi,
Ég mun gera allt sem í mínu valdi stendur til þess að þessarri aðgerð verði snúið og þessi mál leidd til lykta á heilbrigðari hátt.

mbl.is Götusmiðjan íhugar málaferli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég bara trúi þessu ekki ! Hvað er í gangi ? Og á bara að senda börnin heim ? Og hvað gerist þá ??? Er barnaverndarnefnd með einhver önnur og betri úrræði ? Hélt ekki .... Það má alls EKKI loka götusmiðjunni,Mummi er góður maður og ég trúi ekki að hann sé að hóta börnumnum líkamsmeiðingum.En þessi börn þurfa auðvitað MIKINN aga ! Ég veit að Götusmiðjan...- Mummi og hans starfsfólk eru búin að gera frábæra hluti og hafa hjálpað mjög mörgum krökkum. Ég MÓTMÆLI þessu og hvet ykkur til þess sama !

Guðrún Harðardóttir (IP-tala skráð) 26.6.2010 kl. 11:37

2 identicon

Þetta lyktar af pólitík og bitlingum.

Og ég er hræddur um að það sé ekki verið að hugsa þarna fyrst og fremst um krakkana.

Mig grunar að það séu einhverjir aðrir sem vilja komast með krumlurnar í þær ørfáu krónur sem Mummi hefur fengið til að reka staðinn. En ekki gleyma því að hann hefur altaf þurft að safna frá almenningi upp í restina. Ríkið hefur aldrei sett í þennan málaflokk nema aura.

Arnór Valdimarsson (IP-tala skráð) 26.6.2010 kl. 18:30

3 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

   Því í ósköpunum fara yfirmenn barnavernda alltaf,nánast alltaf svona að. Hélt að umræðan um Breiðivíkur-drengina hefðu átt að kenna þeim, að ofbeldið hefur oftar en ekki komið frá embættismönnum,sem hafa völdin. Ég er ekki farin að trúa eftir öll þau ár,sem Mummi hefur helgað sig þessu starfi,sé hann farinn að hóta meiðingum með eggvopnum. Í umgengni við ólánssöm börn,verður auðvitað að beita aga, en  oft eru ummæli skrumskæld. En Mummia trúi ég meðan hann sjálfur getur gefið skýringu á þessari uppákomu.

Helga Kristjánsdóttir, 27.6.2010 kl. 03:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ómar Hlynsson

Höfundur

Ómar Hlynsson
Ómar Hlynsson
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband